Innlent

Þjófur reyndi að fela sig eftir innbrot

Brotist var inn í bílskúr við Vesturgötu í Hafnarfirði í nótt, en vitni sá til þjófsins og kallaði á lögreglu.

Styggð kom að þjófnum og hafði hann forðað sér áður en lögregla kom á vettvang, en hún fann hann, þar sem hann hafði falið sig í grenndinni. Hann var handtekinn og gistir fangageymslur.

Ekki er ljóst hvort hann stal einhverju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×