Innlent

Telja ríkisstjórnina leggja meiri áherslu á banka en heimili

Steingrimur og Jóhanna leiða ríkisstjórnina
Steingrimur og Jóhanna leiða ríkisstjórnina Mynd Vilhelm
Meirihluti landsmanna telur að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu bankanna en heimilanna.

Rúm 67 prósent svarenda í viðhorfskönnun MMR sagðist vera þessu sammála eða mjög sammála.

Þetta er lítil breyting frá því fyrir ári síðan þegar 70,8% sögðust sömu skoðunar.

Um þriðjungur telur að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin.

Rétt um 12% eru sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings.

Könnunin nú var endurtekning könnunar MMR frá í júlí 2010.

Þá voru 32,7% þeirra sem tóku afstöðu sem töldu að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin. Hins vegar kváðust 42,4% þeirra sem tóku afstöðu öndverðrar skoðunar, það er töldu að stjórnarandstaðan myndi ekki stjórna landinu betur en ríkisstjórnin. Hvorutveggja reyndist lítil breyting frá í júlí 2010, þegar 29,3% lýstu sig sammála því að landinu yrði betur stjórnað af stjórnarandstöðunni og 45,2% sögðust ósammála því að landinu yrði betur stjórnað af stjórnarandstöðunni.

Einungis 12,4% þeirra sem tóku afstöðu sögðust sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings á meðan 65,1% kváðust því ósammála. Þessi niðurstaða er lítil breyting frá fyrra ári þegar 15,8% lýstu sig sammála því að Alþingi stæði vörð um hagsmuni almennings en 64,1% sögðust því ósammála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×