Innlent

Tvö útköll vegna elds

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í gærkvöldi vegna elds í strætóskýli við Skógarsel í Breiðholti.

Áður en slökkviliðið komst á staðinn hafði góðborgari úr hverfinu náð að slökkva eldinn. Skýlið er þó töluvert skemmt.

Þá kom upp eldur í ruslagámi við pizzastaðinn Dominos við Lóuhóla um klukkan hálf eitt í nótt. Greiðlega gekk að slökkva í gámnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×