Lögreglan á Selfossi elti meinta innbrotsþjófa til Reykjavíkur 17. ágúst 2011 07:22
Lögreglan á Selfossi fékk rétt fyrir klukkan fimm í morgun tilkynningu um yfirstandandi innbrot í sumarhús í Úthlíð. Á leið sinni þangað mætti lögreglan meintum gerendum á bíl en þeir sinntu ekki stöðvunarmerkjum og reyndu að komast undan lögreglu. Þeir voru að lokum handteknir þegar komið var til Reykjavíkur. „Þeim var veitt eftirför og lokanir undirbúnar á áætlaðri leið þeirra á Selfoss en ökumaður bílsins fór hinsvegar af Biskupstungnabraut um Þingvallaveg, Grafningsveg og Nesjavallaleið. Þá voru settar upp lokanir á Nesjavallaleið, skammt vestan Dyrfjalla, en hann hundsaði þær og akstur hans stöðvaðist ekki fyrr en komið var niður undir Reykjavík,“ segir í tilkynningu lögreglu. „Þar lenti hann út af vegi þegar hann var að reyna að koma sér framhjá lokun sem lögreglan þar hafði sett upp. Engin slasaðist í útafakstrinum og litlar skemmdir munu vera á bílnum. Í bílnum reyndust vera tveir aðilar, með ætlað þýfi, sem nú verða fluttir í fangageymslur á Selfossi vegna rannsóknar málsins.“ Lögreglan á Selfossi þakkar Sérsveit Ríkislögreglustjóra og Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins veitta aðstoð í málinu. Í samtali við fréttastofu segir varðstjórinn hjá lögreglunni á Selfossi að verið sé að kanna hvort farið hafi verið inni í fleiri bústaði á svæðinu.
Mest lesið Mohamad vill flytja af landi brott Innlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Erlent Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Innlent Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Innlent Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Innlent Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Innlent Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Innlent Fleiri fréttir Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Bílakaup verðandi forseta Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Engin merki um hlaupóróa lengur Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Hringvegurinn opnaður en ökumenn beðnir um að sýna tillitssemi Handteknir við að stela dósum úr gám Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði Sjá meira