Innlent

Svissneskum hjónum bjargað úr Skyndidalsá

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Svissneskum hjónum var bjargað af þaki bíls sem sat fastur í Skyndidalsá, sem rennur í Jökulsá í Lóni.

Samkvæmt tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg óku hjónin í  ána á röngum stað þannig að hún reif bíl þeirra með sér og bar hann um 50 metra niður með straumnum.

Þegar bíllinn stöðvaðist í ánni komu þau sér upp á þak bílsins og náðu að hringja eftir aðstoð þrátt fyrir að símasamband sé afar stopult á svæðinu. Hringdu þau í lögregluna í Sviss sem lét Neyðarlínuna vita. Gátu þau sagt númer vegarins sem þau óku (F980) og að þau væru stödd í á. Dugði það til að Björgunarfélag Hornafjarðar, sem var samstundis kallað út, gat komið fólkinu til aðstoðar.

Svissnesku hjónunum var snarlega bjargað af þaki bílsins og voru þau í fínu ástandi enda veður gott, sólskin og blíða. Bíllinn, sem er bílaleigubíll, var svo dreginn úr ánni en hann er mikið skemmdur, jafnvel ónýtur, enda flæddi alveg upp undir þak á honum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×