Innlent

VÍS verður einn bakhjarla Hofs

Árlegur rekstrarkostnaður við Hof er um 330 milljónir króna.
Árlegur rekstrarkostnaður við Hof er um 330 milljónir króna. Mynd/Sunna
Vátryggingamiðstöð Íslands og Menningarhúsið Hof á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um að VÍS verði einn af bakhjörlum Hofs næstu þrjú starfsárin.

Ríkið tekur ekki þátt í rekstrarkostnaði Hofs, en ráð var gert fyrir því í samningum ríkisins við Akureyrarbæ frá árinu 2003. Ríkið styrkti byggingarframkvæmdina um 950 milljónir króna, en endanlegur kostnaður var 3,3 milljarðar. Árlegur rekstrarkostnaður Hofs er um 330 milljónir. Vel á annað hundrað þúsund gesta heimsóttu Hof á fyrsta starfsári en húsið var opnað í lok síðasta sumars.

- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×