Hjörtur Howser fær ekki að búa á æskuheimilinu 18. apríl 2011 19:00
Dæmi eru um að bankar leysi til sín húseignir á minna en sem nemur helmingi fasteignamats og miði leigu á húsnæðinu til fyrri eigenda við fullt fasteignamat. Sú er raunin hjá tónlistarmanninum Hirti Howser en beiðni bankans um að bera hann út úr húsnæði sínu var samþykkt í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Hjörtur Howser er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði. Nú sér hann fram á að missa æskuheimili sitt úr höndunum. „Ég og sambýliskona mín ætluðum að gera þetta að okkar eigin heimili og vorum langt komin með það þegar allar forsendur brustu í bankahruninu," segir Hjörtur. Hjörtur og sambýliskona hans eru í dag skilin. Eftir sitja skuldir og hálfklárað hús en eignin er skráð á sambýliskonuna. „Bankinn er búinn að leysa til sín húsið, sannarlega, á nauðungaruppboði. Það sem að ég hugðist reyna og ekki er útseð með enn er að fá að dvelja í húsinu einhvern tíma." Beiðni frá Íslandsbanka um að Hjörtur verði borinn út úr húsi sínu var samþykkt í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Bankinn leysti húsið til sín á nauðungarsölu í nóvember og vonast Hjörtur til þess að fá að leigja húsið af bankanum til nóvember líkt og úrræði ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir. „Það er erfitt að standa út á bílastæði með húsgögnin sín og drenginn og eiga ekki í nein hús að vernda," segir Hjörtur. Íslandsbanki leysti húsið til sín á tólf milljónir en Hjörtur segir að þegar komi að því að ræða leiguverð fyrir hann miði bankinn nánast við fullt fasteignamat sem er í dag 33,4 milljónir. „Mér finnst auðvitað 12 milljónir fráleit upphæð í hús sem ég hef eytt hálfri ævinni í að reisa frá grunni og er í raun endurnýjað allt. En örugglega er þetta ekki í þeirra huga markaðsvirði. það kæmi mér á óvart ef bankarnir telja eignirnar ekki meira virði þegar það snýr að þeim en ætla síðan að reikna allt upp í topp þegar kemur að okkur," segir Hjörtur. „Það snjóar pínulítið á okkur. Það skiptast á skin og skúrir í veðrinu og lífinu. Ég er dapur," segir Hjörtur að lokum.
Mest lesið Árni Þórður er látinn Innlent Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Innlent Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Innlent „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Innlent Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Innlent Þorvaldur Halldórsson látinn Innlent Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Innlent Alvarlegt vinnuslys í Grindavík Innlent Walz hjólaði í Trump og Vance á fyrsta kosningafundinum í gær Erlent Hvalurinn er laus: „Þetta er kraftaverki næst“ Innlent Fleiri fréttir Menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir teppi neyðarviðbragð landsins Alvarleg gabbútköll, nýtt neyslurými og bongóblíða í bænum Hvalurinn er laus: „Þetta er kraftaverki næst“ „Alvöru úttekt“ verði gerð á máli Brákarborgar Enginn handtekinn í sérsveitaraðgerð í Vogahverfi Árni Þórður er látinn Grunaður um heimilisofbeldi skömmu fyrir meint manndráp Ummerki eftir hlaupið stóra í sigkötlum í Mýrdalsjökli Nýtt neyslurými opnar í Borgartúni: Skoða að bjóða gestum upp á vímuefni til skaðaminnkunar Fann skotfæri úr fórum nasista á Hlíðarfjalli Alvarlegt vinnuslys í Grindavík Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Lokað vegna linnulausrar rigningar Segir líforkuver risastórt skref í átt að matvælaöryggi Þorvaldur Halldórsson látinn „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Gabbútköll skapi mjög alvarlega stöðu fyrir þyrlusveitina Sex vilja stýra Jafnréttisstofu Falsútköll, hvalreki og vígreift varaforsetaefni Steypireyður strandaði við Þorlákshöfn Piltar undir sakhæfisaldri á bak við skemmdarverkin Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Enn rólegt á Reykjanesskaga þótt gosið gæti á hverri stundu Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma „Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Sterkar vísbendingar um falsboð Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Sjá meira