Innlent

Undir áhrifum á ofsahraða

Ökumaður, sem lögreglan stöðvaði í nótt eftir að hafa mælt hann á 111 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar, reyndist undir áhrifum áfengis og var tekinn úr umferð.

Tveir ölvaðir ökumenn til viðbótar voru stöðvaðir og reyndist annar þeirra auk þess réttindalaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×