Innlent

Hefur ekið strætó í fjörutíu ár

MYND/Heimasíða innanríkisráðuneytisins
Jónas Engilbertsson strætóbílstjóri náði þeim áfanga í síðustu viku að hafa ekið strætisvagni í 40 ár. Ögmundur Jónasson ráðherra samgöngumála, heiðraði Jónas af því tilefni en einnig var hann heiðraður af Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar.

Á heimasíðu innanríkisráðuneytisins kemur fram að Ögmundi hafi fundist tilhlýðilegt að taka á móti Jónasi er hann kom úr þeirri ferð sem markaði þennan áfanga. „Jónas hefur þannig sinnt almenningssamgöngum í þessa fjóra áratugi og hefur án efa upplifað ýmsar breytingar á strætisvögnunum, umferðinni í Reykjavík og ferðavenjum fólks þennan tíma,“ segir ennfremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×