Innlent

Þyrla sótti alvarlega veikan sjómann í nótt

Sjómaður veiktist alvarlega um borð í íslensku fiskiskipi djúpt vestur af Reykjanesi í nótt og var óskað eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar myndi sækja hann.

Skipið var um hundrað sjómílur undan landi og töluverð ölduhæð, þegar þyrlan kom á vettvang, en vel gekk að hífa manninn um borð og lenti þyrlan með hann við Borgarspítalann rétt fyrir klukkan sjö, þar sem koma hans hafði verið undirbúin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×