Innlent

Varað við snörpum vindstrengjum

Landeyjar og Vestmannaeyjar í baksýn. Búist er við stormi í Eyjum í kvöld og í nótt.
Landeyjar og Vestmannaeyjar í baksýn. Búist er við stormi í Eyjum í kvöld og í nótt. Mynd/Óskar P. Friðriksson
Búast má við mjög snörpum vindstrengjum við fjöll á suðaustanverðu landinu og syðst. Dregur úr vindi þar síðdegis á morgun, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. Einnig má búast við nokkuð hvössum hviðum norðvestantil á landinu í nótt og fram eftir morgundegi. Búist er við stormi í Vestmanneyjum um tíma seint í kvöld og í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×