Innlent

Nær nýju hámarki í kvöld

Skaftá í júní 2010.
Skaftá í júní 2010.
Rennsli í Skaftá hefur aukist í dag og er búist við að það nái nýjum toppi fyrir miðnætti. Undanfarna daga hafa verið talsverðar dægursveiflur og því er ekki hægt að segja til um hvort hlaupið hafi endanlega náð hámarki sínu og hvort því ljúki fljótlega. Sérfræðingur á Veðurstofunni segir rennslið  nú vera um 330 rúmmetrar á sekúndu en í hádeginu var það um 300 rúmmetrar. Í hlaupinu í Skaftá í fyrra var rennslið þegar það var mest um 600 rúmmetrar á sekúndu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×