Innlent

Norska lögreglan betur mönnuð en sú íslenska

Mynd/Pjetur
Íslenska lögreglan er ekki eins vel mönnuð og í Noregi. Væru hlutfallslega jafnmargir lögreglumenn í Reykjavík og nágrenni og í Ósló væru lögreglumennirnir 700-800 en ekki 350. Þetta segir Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra.

Í pistli á heimasíðu sinni fjallar Björn um árásirnar í Osló og Útey. Björn segir meðal annars að ljóst sé öryggisráðstafanir verða auknar í Noregi eftir árásirnar. „Spurning er hvort lögreglan verði vopnuð en norska lögreglan er ásamt hinni íslensku og bresku í hópi þriggja óvopnaðra lögreguliða í Evrópu. PST, norska öryggis- og leyniþjónustan, mun breyta áherslum sínum.“

Björn vísar til orða Kristian Berg Harpviken, forstjóra norskrar friðarrannsóknarstofnunar, sem sagði nýverið að ekki væri þörf á meiri búnaði eða fjármunum í þágu norsku lögreglunnar. Hins vegar þurfi að efla greiningarþjónustu og eftirlit svo að lögreglan viti hvert hún eigi að beina kröftunum.

Þá beinir Björn athyglinni að Íslandi en hann hefur lengi talað fyrir auknum heimildum fyrir lögregluna. „Án heimildar til forvirkra rannsókna sem eru í höndum leyniþjónusta í nágrannalöndunum rekst íslensk lögregla hins vegar á hindranir sem gera henni ókleift að sinna störfum sínum sem skyldi miðað því þær kröfur sem eðlilegt er að gera til hennar.“

Björn segir í pistlinum, sem hægt er að lesa hér, atburðina í Noregi ekki leiða sjálfkrafa til breytinga. „Eðlilega er enginn samur eftir atburði á borð við þá sem gerst hafa í Noregi. Þáttaskil hafa orðið en þau leiða ekki sjálfkrafa til breytinga, þær verða ekki nema til þeirra sé vilji.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×