Innlent

Leitaði til neyðarmóttöku vegna nauðgunar

Mynd/Óskar P. Friðriksson
Ein kona hefur leitað til bráðamóttöku Landsspítalans vegna nauðgunar um Verslunarmannahelgina. Atvikið átti sér stað í Eyjum, en samkvæmt Eyrúnu Jónsdóttur, hjúkrunarfræðingi, er von á tveimur til þremur konum til viðbótar í dag.

Eyrún segir jafnframt að það taki þolendur oftast um þrjá til fjóra daga að leita á móttökuna vegna kynferðisbrotamála, þannig að hugsanlega eiga fleiri mál eigi eftir að koma upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×