Lögbann á samingaviðræður milli Akureyrar og SS Byggis Hugrún Halldórsdóttir skrifar 21. apríl 2011 19:00
Byggingarfélagið Hamarsfell hefur fengið lögbann á að Akureyrarbær semji við SS Byggi eftir útboð um byggingu Naustaskóla. Fyrirtækið hyggst höfða skaðabótamál á hendur bænum. Hamarsfell átti í upphafi lægsta tilboðið í verkið en SS Byggi 4. og 5. lægsta. Fimmta apríl, daginn eftir að Akureyrarbær samþykkti og birti tilboð Hamarsfells opinberlega, fékk fyrirtækið hinsvegar senda tilkynningu frá bænum þess efnis að samlagningarvilla að upphæð tæplega áttatíu og fjögurra milljóna króna hafi komið í ljós í tilboði SS Byggis og því ætti það lægsta tilboðið. „Við fáum engin svör, ekki eitt einasta. Við fáum ekki einu sinni að sjá pappírana við fáum ekki að sjá gögnin sem liggja að baki. Við fáum ekki að vita hvort þetta er Excel villa, innsláttarvilla, mannleg mistök eða neitt. Því miður, þetta er trúnaðarmál," segir Jón Ármann Steinsson, fulltrúi Hamarsfells. Eftir að hafa farið yfir tölur sem töldust opinberar í tilboði SS Byggis benti Hamarsfell á að útreikningar á virðisaukaskatti væru óraunhæfir þar sem fyrirtækið áætlaði bænum endurgreiðslu upp á 65 milljónir króna. Akureyrarbær lækkaði í kjölfarið endurgreiðslutölur virðisauka fyrir hönd SS Byggis um tíu milljónir. Ef Hamarsfell vill viðhalda lögbanninu þarf fyrirtækið að greiða bænum 66 milljónir króna tryggingu. „Þér að segja þá efast ég um að það sé skynsamlegt fyrir fyrirtæki sem stendur í miklum framkvæmdum að binda 66 milljónir í svona deilu, sem er í raun og veru bara augljós ormagryfjuspillingarvitleysa. Þetta er eins og Kardimommubærinn. Við finnum bara aðrar leiðir," segir Jón Ármann. Hamarsfell undirbýr nú skaðabótamál gegn bænum.
Mest lesið Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Innlent Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Innlent „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Innlent Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Innlent Walz hjólaði í Trump og Vance á fyrsta kosningafundinum í gær Erlent Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Innlent Þorvaldur Halldórsson látinn Innlent Alvarlegt vinnuslys í Grindavík Innlent Piltar undir sakhæfisaldri á bak við skemmdarverkin Innlent Lokað vegna linnulausrar rigningar Innlent Fleiri fréttir Ummerki eftir hlaupið stóra í sigkötlum í Mýrdalsjökli Nýtt neyslurými opnar í Borgartúni: Skoða að bjóða gestum upp á vímuefni til skaðaminnkunar Fann skotfæri úr fórum nasista á Hlíðarfjalli Alvarlegt vinnuslys í Grindavík Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Lokað vegna linnulausrar rigningar Segir líforkuver risastórt skref í átt að matvælaöryggi Þorvaldur Halldórsson látinn „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Gabbútköll skapi mjög alvarlega stöðu fyrir þyrlusveitina Sex vilja stýra Jafnréttisstofu Falsútköll, hvalreki og vígreift varaforsetaefni Steypireyður strandaði við Þorlákshöfn Piltar undir sakhæfisaldri á bak við skemmdarverkin Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Enn rólegt á Reykjanesskaga þótt gosið gæti á hverri stundu Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma „Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Sterkar vísbendingar um falsboð Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Sjá meira