Segir gæsluna ekki hafa brugðist á Þjóðhátíð 2. ágúst 2011 18:14
Formaður Þjóðhátíðarnefndar segir gæsluna ekki hafa brugðist í Vestmannaeyjum um helgina. Maðurinn sem grunaður er um nauðgun á hátíðinni var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag, en alls komu að minnsta kosti sex nauðgunarmál upp á útihátíðum um helgina. Maðurinn sem grunaður er um nauðgun í Vestmannaeyjum aðfaranótt sunnudags var leiddur fyrir dómara í morgun. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudaginn 5. ágúst og sætir einangrun þann tíma. Maðurinn er 25 ára gamall og gat konan sem varð fyrir nauðguninni gefið lýsingu á honum. Gæslumenn í Herjólfsdal höfðu svo uppi á manninum og hann var handtekinn. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi segir að farið hafi verið fram á gæsluvarðhald af tveimur ástæðum. Annars vegar sé maðurinn talinn hættulegur og hinsvegar sé þetta gert til að hann geti ekki spillt fyrir rannsókninni með einhverjum hætti með því að ganga laus. Auk þessa máls bárust fjórar aðrar tilkynningar um nauðganir á hátíðinni en Oddur segir aðeins eina nauðgun til rannóknar. Nauðgunarmálin hafa sett svartan blett á Þjóðhátíð í Eyjum þetta árið. Svo virðist sem ómögulegt sé að halda hátíð á borð við Þjóðhátíð í Eyjum án þess að fréttir af nauðgunum berist dagana á eftir. Páll Scheving Ingvarsson, formaður þjóðhátíðarnefndar segir að tekið sé mark á öllum upplýsingum og öllu sem berist til nefndarinnar. Öll gagnrýni sé tekin mjög alvarlega. Hann telur gæsluna ekki hafa brugðist um helgina þrátt fyrir þau nauðgunarmál sem komu upp. „Ef það reynist rétt þá munum við svo sannarlega bæta það og stoppa í þau göt." Auk nauðgunarmálanna í Eyjum kom ein tilkynning um nauðgun fram á Akureyri. Það er því ljóst að þó skipuleggjendur hátíða hafa sagt þær hafa farið vel fram - eru margir sárir.
Mest lesið Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Innlent Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Erlent Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Innlent Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Erlent Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Innlent Fleiri fréttir Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum „Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins Hjólhýsið fuðraði upp „Ekki við hæfi“ að dómsmálaráðherra tjái sig um mál Helga Umdeild ummæli, líkur á gosi og truflandi skilti „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Vonar að ráðherra verði ekki við ósk Sigríðar Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Gæti gosið á næstu dögum Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Sjá meira