Innlent

Nítján ára stúlka ók utan í lögreglubíl og stakk af

Stúlkan ók greitt.
Stúlkan ók greitt.
Nítján ára stúlka ók utan í lögreglubíl þegar hún reyndi að komast undan vegna ölvunaraksturs. Stúlkan hafði verið að aka í Þingholtunum klukkan fjögur í nótt þegar lögreglan tók eftir undarlegu aksturslagi stúlkunnar.

Þeir gáfu henni merki um að stöðva bílinn. Hún hunsaði þau fyrirmæli og freistaðist til þess að stinga lögregluna af.

Lögreglan veitti stúlkunni eftirför um Þingholtin þar sem hún ók greitt og skapaði mikla hættu.

Eftirförin barst niður að gatnamótum Hverfisgötu og Frakkastígs þar sem stúlkan stöðvaði bílinn og reyndi að hlaupa í burtu. Lögreglan hljóp hana svo uppi. Stúlkan gistir fangageymslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×