Innlent

Líkamsárás og bílaþjófnaður á N1

Hringbraut. Myndin er úr safni
Hringbraut. Myndin er úr safni
Einn karlmaður var handtekinn vegna líkamsárásar á bensínstöðinni N1 við Hringbraut í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni komu upp átök nokkurra manna á bensínstöðinni sem varð til þess að lögreglan var kölluð á vettvang.

Þegar þangað var komið stöðvaði lögreglan slagsmálin og handtóku mann sem hafði sig mestan frammi. Hann gisti nú fangageymslur lögreglunnar.

Þá var bíl stolið fyrir utan bensínstöðina í nótt. Viðskiptavinur stökk inn til þess að versla.

Hann skildi bílinn eftir í lausagangi. Þegar hann snéri aftur þá var búið að stela bílnum. Opið er allan sólarhringinn í búðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×