Innlent

Banaslys í Landssveit

Banaslys varð síðdegis í gær á heimreið að sumarhúsi í Landssveit í Rangárþingi ytra, þegar barn á sjötta ári varð undir afturhjóli bíls.

Barnið var flutt með þyrlu Landheglisgæslunnar á slysadeild Landsspítalans, en var úrskurðað látið nokkru eftir komuna þangað. Ekki hefur verið greint nánar frá tildrögum slyssins, en lögreglan á Hvolsvelli og rannsóknadeild lögreglunnar á Selfossi fara með rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×