Innlent

Önnur nauðgun á Þjóðhátíð kærð

Frá þjóðhátíð
Frá þjóðhátíð Mynd/Óskar
Tæknideild lögreglunnar á Selfossi, sem er rannsóknadeild fyrir allt Suðurland, fékk í gær aðra formlega kæru um nauðgun á þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum og þriðja kæran er að líkindum í burðarliðnum.

Tvö mál til viðbótar, sem ekki hafa verið formlega kærð, fara samt sem áður í rannsóknaferli. 25 ára karlmaður, sem var úrskurðaður í gærluvarðhald vegna fyrstu kærunnar, áfrýjaði úrskurðinum til Hæstaréttar, en hann staðfesti úrskurðinn, sem rennur út á morgun. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×