Innlent

Fjölmennur útifundur við Oddskarðsgöng

Hátt á annað hundrað manns mættu á útifund norðfjarðarmegin við Oddskarðsgöng í gærkvöldi til að þrýsta á að ráðist verði í gerð Norðfjarðarganga, sem leysi Oddskarðsgöngin af hólmi.

Göngin eru einbreið, sem farið er að valda vandræðum, auk þess sem þau eru hátt yfir sjávarmáli.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar ritaði öllum Alþingismönnum kjördæmisins bréf í gær þar sem lýst er óánægju og vonbrigðum  yfir seinagangi í málinu, sem tefji fyrir að Fjarðabyggð byggist upp sem eitt atvinnu- og þjónusutsvæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×