Innlent

Allir fangelsiskostir enn til athugunar

Aðstæður í kvennafangelsinu í Kópavogi þykja ekki boðlegar, né í fangelsinu á Skólavörðustíg. Nýtt húsnæði á meðal annars að bæta úr þeim málum.
Aðstæður í kvennafangelsinu í Kópavogi þykja ekki boðlegar, né í fangelsinu á Skólavörðustíg. Nýtt húsnæði á meðal annars að bæta úr þeim málum. Mynd/Vilhelm
ögmundur jónasson
Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvernig staðið verður að því að auka við fangelsisrými. Innanríkisráðuneytið vinnur nú úttekt á kostnaði og hagkvæmni þess að breyta ýmsum húsum ríkisins í fangelsi. Engir kostir hafa verið útilokaðir.

Meðal þeirra kosta sem liggja undir eru hjúkrunarheimilið í Víðinesi, Vífilsstaðaspítali, Arnarholt og vinnubúðir við Reyðarfjörð. Í Fréttablaðinu í gær var ranghermt á málin hefðu verið rædd á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag. Hið rétta er að það var gert fyrir viku.

Kostnaður liggur ekki fyrir við alla kostina en þó er ljóst að það mun kosta 1,8 milljarða króna að breyta Vífilsstöðum þannig að húsnæðið nýtist sem öryggis- og gæsluvarðhaldsfangelsi. Bygging nýs fangelsis kostar tvo milljarða króna.

Umtalsverður kostnaður er við að breyta Víðinesi í fangelsi en nákvæmur kostnaður liggur ekki fyrir þar né á öðrum kostum. Sérfræðingar í innanríkisráðuneytinu telja að sú leið tefji vígslu nýs fangelsis um eitt ár, miðað við nýbyggingu.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra telur að bygging nýs fangelsis sé ódýrasti og hagkvæmasti kosturinn fyrir skattborgara. Rekstrarkostnaðurinn sé minni á slíkri byggingu en á eldra húsi. Þá segir hann sérfræðinga sem að málinu hafa komið fullyrða að það sé ekki góður kostur að breyta eldra húsnæði.

„Við settum í stöðugleikasáttmálann ýmis verkefni sem eru atvinnuskapandi. Ég fullyrði að fá verkefni eru eins til þess fallin að skapa mörgum atvinnu og að reisa nýtt fangelsi." Spurður hvað dvelji ákvörðun um málið segir hann að verið sé að horfa í ríkisbudduna. Öllum steinum hafi verið velt til að finna hagkvæmustu lausnina.

Enn er deilt um fjármögnun fangelsisins en Ögmundur telur að ríkissjóður eigi að standa fyrir henni. „Það hefur legið fyrir að fangelsi verður fjármagnað úr ríkissjóði, hvaða form sem verður á því. Þeir sem þar gista borga hvorki húsnæði né fæði."

Ákvörðun um framkvæmdina verður tekin í þessum mánuði.

kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×