Innlent

Einn fullorðinn og tvö börn í sjálfheldu í Úlfarsfelli

Úlfarsfell - tengist frétt ekki beint
Úlfarsfell - tengist frétt ekki beint Mynd úr safni
Undanfarar björgunarsveita af höfuðborgarsvæðinu eru nú í Úlfarsfelli þar sem þrjár manneskjur eru í sjálfheldu í Hamrahlíð. Um er að ræða einn fullorðinn og tvö börn.

Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að björgunarsveitarmenn séu komnir að fólkinu og munu fylgja því niður á jafnsléttu. Aðstæður eru nokkuð góðar en þó þannig að sá fullorðni treysti sér ekki til að fara einn niður með bæði börnin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×