Innlent

Lýst eftir konu á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Magneu Guðnýju Stefánsdóttur, til heimilis að Bragavöllum 4 í Reykjanesbæ. Magnea fór frá heimili sínu um klukkan fimm í morgun á bifreið sinni, sem er lítill svatur jeppi með skráningarnúmerið RS-M06.

Magnea er 61 árs, með dökkt sítt hár, grannvaxin, um 170 sentimetrar á hæð og gengur við hækju. Ekki er vitað um klæðnað Magneu en hugsanlegt er að hún sé klædd náttfötum.

Þeir sem verða varir við ferðir Magneu eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×