Innlent

Helmingi færri vildu í forsætisráðuneytið: Engin vonbrigði

Erla Hlynsdóttir skrifar
"Fyllilega hæfir einstaklingar voru á meðal umsækjenda," segir skrifstofustjóri hjá forsætisráðuneytinu
"Fyllilega hæfir einstaklingar voru á meðal umsækjenda," segir skrifstofustjóri hjá forsætisráðuneytinu Mynd Valgarður
Ríflega tvöfalt fleiri sóttu um stöðu upplýsingafulltrúa í umhverfisráðuneytinu en í forsætisráðuneytinu þegar störfin voru auglýst. 93 sóttu um starf upplýsingafulltrúa hjá umhverfisráðuneytinu en 37 sóttu hjá forsætisráðuneytinu. Umsóknarfrestur vegna starfanna rann út sama dag hjá báðum ráðuneytum, þann 13. mars.

Umsækjendum hjá umhverfisráðuneytinu var tilkynnt þann 19. apríl um að ráðið hefði verið í starfið, rúmum mánuði eftir að umsóknarfrestur rann út. Umsækjendur hjá forsætisráðuneytinu fengu að vita í júlí að fallið hefði verið frá ráðningu í starfið, um fjórum mánuðum eftir að umsóknarfrestur rann út.

„Engar einhlítar skýringar eru á því hversu langur tími leið frá því að starfið var auglýst og þar til ákvörðun var tekin um að falla frá ráðningu. Ljóst er þó að miklar annir í ráðuneytinu áttu sinn þátt í því að lengja málsmeðferðartímann," segir í svari frá Ágústi Geir Ágústssyni, skrifstofustjóra skrifstofu yfirstjórnar forsætisráðuneytisins, við fyrirspurn fréttastofu.

Fjöldi umsækjenda ekki vonbrigði

Í fyrirspurninni var einnig óskað eftir svörum við því hvort það hafi verið vonbrigði hversu fáir sóttu um starfið, sér í lagi þegar fjöldinn er borinn saman við fjölda umsækjenda hjá umhverfisráðuneytinu. Ágúst Geir segir: „Ráðuneytið getur ekki tekið undir þá afstöðu sem fram kemur í erindi þínu að fáir hafi sótt um starfið. Fjöldi umsækjenda olli því ekki vonbrigðum."

Hann neitar því aðspurður hvort enginn umsækjandi hafi þótt nógu hæfur og því fallið frá ráðningunni. „Fyllilega hæfir einstaklingar voru á meðal umsækjenda," segir Ágúst Geir og vísar í fyrri svör ráðuneytisins um að ástæður þess að ekki var ráðið í stöðuna séu meðal annars tengdar viðleitni ráðuneytisins til að ná aðhaldsmarkmiðum í rekstri.

„Auk þess hafa starfsmannamál Stjórnarráðsins verið til skoðunar og umfjöllunar á undanförnum vikum m.a. í tengslum við breytingar sem miða að því að auka aðhald og sveigjanleika í starfsmannahaldi innan Stjórnarráðsins. Þótti jafnframt rétt að bíða niðurstöðu í því máli," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×