Innlent

Kannabissali handtekinn á Selfossi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kannabisefni.
Kannabisefni.
Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af ungum manni inni á veitingastað á selfossi í gærkvöldi. Lögregluþjónar þóttust finna kannabislykt af manninum sem brást illa við afskiptum lögreglu og var hann að lokum handtekinn eftir smá átök.

Á manninum fundust kannabisefni og vörur sem notaður eru til að búa kannabisefni undir sölu. Hann gisti fangageymslur og bíður skýrslutöku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×