Innlent

Framleiðir lífrænar snyrtivörur úr íslensku regnvatni

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
David Coaten kom hingað ásamt íslenskri konu sinni fyrir nokkrum árum og framleiðir nú lífræna áburði, krem og varasalva undir nafninu Alkemistinn og lífræn te sem heita Grasakver. Vörurnar hafa fengið góðar viðtökur í verslunum með lífrænar vörur hér á landi og verða bráðum fáanlegar í flugvélum Icelandair.

,,Þegar talað er um að þetta sé lífrænt er það ekki aðeins að það sé ræktað án meindýraeiturs,

áburðar og þess háttar heldur má rekja það allt til upprunans, bújarðarinnar og akursins." segir David.

David býr til allar vörurnar frá grunni og notar jurtir og olíur bæði innfluttar og íslenskar. Þá segir hann íslenska vatnið alveg einstakt. ,,Ég tel að íslenska vatnið og hreinleiki þess sé sá mesti sem

fyrirfinnst í veröldinni. Mig langaði því að komast að kjarnanum og það er ástæða þess að við fluttum hingað, þ.e. til að nýta okkur þetta vatn. Ég er ekki aðeins að tala um vatnið sem fólk drekkur hér.

Ég nota vatn sem ég safna og er í raun rigningarvatn. Ég eima úr því og svo nota ég einnig bráðnaðan snjó."

David segir að rannsóknir hafi sýnt að vatn sem staðsett er við mismunandi aðstæður til dæmis á rokktónleikum eða í kirkju hafi mismunandi munstur þegar það frýs. ,,Það er eins og vatnið

taki við titringnum og ef maður hugleiðir það að vatn er 70-80% af líkamsþyngd okkar hefur það vissulega áhrif á vatnsbúskap okkar hvernig við komum fram við hvert annað."



Því sé mikilvægt að vera einnig rólegur við meðhöndlun vatnsins þegar hann framleiðir snyrtivörurnar. ,,Þetta líkist því þegar maður eldar máltíð og gefur sig allan í verkið. Þá bragðast

maturinn mun betur en ella." segir David að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×