Innlent

Iceland Express hefur vikuleg flug til Flórída í vetur

Mynd úr safni
Iceland Express mun fljúga til Flórída í Bandaríkjunum allan næsta vetur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag. 

Flogið verður á laugardögum frá Keflavík til Flórída og á sunnudögum frá Flórída.  Fyrsta flugið verður í byrjun október og verður flogið fram í miðjan apríl 2012 eða fram yfir páska.

Félagið var með áætlunarferðir til Flórída síðastliðið haust og vor, en þær gengu afar vel og hefur því verið ákveðið að fjölga ferðum.

Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, segir ákvörðunina hluta af stækkun leiðakerfis fyrirtækisins á Norður-Atlantshafsleiðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×