Innlent

Hjólar syngjandi hringinn kringum Ísland

Hutton kemur til með að syngja og hjóla um Ísland í átta vikur.
Hutton kemur til með að syngja og hjóla um Ísland í átta vikur.
Enski hjólagarpurinn og söngvarinn Daniel Hutton mun hjóla hringinn kringum Ísland í ágúst og september til þess að safna fé til góðgerðarmála. Ekki nóg með það, heldur mun Hutton syngja alla leiðina.

Hutton mun veita öllu fé sem safnast af uppátæki hans til tveggja góðgerðarmála í tveimur löndum; annars vegar mun hann styrkja Ljósið, endurhæfingar og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda, og hinsvegar Carers' Resource, samtök í heimabæ Huttons, sem veita fólki stuðning til að láta gott af sér leiða.

Söngvarinn á hjólinu kemur ekki til með að taka auðveldu leiðina í kringum landið, heldur hyggst hann þræða alla firði, bæi og fjallavegi Íslands á einungis átta vikum. Allur ágóði af söfnuninni mun renna til góðgerðarfélaganna tveggja.

Þeir sem vilja kynna sér uppátækið og hinn hjólandi söngvara ögn betur geta skoðað sig um á vef Huttons, www.singaroundiceland.com.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×