Innlent

Segir það sérkennilegt að Gunnar gagnrýni

Hafsteinn Karlsson.
Hafsteinn Karlsson.
Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, hafnar gagnrýni Gunnars I. Birgissonar, bæjarfulltrúa og fyrrverandi bæjarstjóra, vegna veislu sem bæjarfulltrúar og nokkrir yfirmenn hjá bænum ásamt mökum sátu fyrir jól.

„Það er kannski dálítið sérkennilegt að gera athugasemdir við svona eftir að hafa eytt gríðarlega þegar hann var við völd. Margt af því var ekki nauðsynlegt," segir Hafsteinn.

Veislan var í menningarmiðstöðinni Molanum þann 21. desember - en ekki á Þorláksmessu eins og kom fram í fundargerð bæjarráðs og í Fréttablaðinu í gær.

Hafsteinn segir kvöldverðinn hafa verið haldinn í litlum sal eftir að bæjarstjórnin afgreiddi fjárhagsáætlun næsta árs. Ákveðið hafi verið að bæjarfulltrúar myndu greiða fimm þúsund krónur fyrir sig og einnig fyrir maka sem mættu. Kostnaðurinn á mann hafi verið 6.363 krónur á mann og bæjarsjóður greitt mismuninn.

Auk bæjarfulltrúanna voru fjórir starfsmenn í kvöldverðinum. Það voru bæjarlögmaður, fjármálastjóri, deildarstjóri menningarmála og deildarstjóri íþrótta- og tómstundamála og þrír makar þeirra. Bæjarsjóður greiddi allan veislukostnaðinn vegna þessa hóps.

Gunnar gagnýndi að veislan skyldi haldin á sama tíma og jólafgjafir til starfsmenn væru skornar niður. „Það er verið að segja upp fólki og við vildum heldur halda einu starfi en að gefa öllum einhverja jólagjöf," útskýrir Hafsteinn sem hafnar því að komið hafi verið illa fram við aðra starfsmenn bæjarins en þá sem sátu veisluna í Molanum. Á flestum vinnustöðum geri menn sér dagamun í desember og stofnanirnar sjái um það sjálfar.

„Það var margt grand þegar Gunnar var bæjarstjóri og það kostaði sitt. Við erum kannski að borga brúsann fyrir það núna," segir Hafsteinn.

Forseti bæjarstjórnar upplýsir að áður hafi ofast verið hangikjöt á borðum í bæjarfulltrúaveislunni. „En í fyrra og hittiðfyrra ákváðum að hafa eitthvað ódýrara og vorum með létt hlaðborð með pinnamat og kjúklingarétti. Og í fyrra ákváðum við að borga fyrir þetta sjálfir bæjarfulltrúarnir og gerðum það eins núna. Þannig að bæjarfulltrúarnir hafa borgað sjálfir frá því Gunnar hætti sem bæjarstjóri."

gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×