Innlent

Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan tók fjórtán manns fyrir ölvunarakstur.
Lögreglan tók fjórtán manns fyrir ölvunarakstur.
Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Garðabæ.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru tveir teknir á föstudagskvöld, sjö á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru tólf karlar á aldrinum 20-50 ára og tvær konur, 19 og 39 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir til viðbótar höfðu aldrei öðlast ökuréttindi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×