Hlutverk mannréttindaráðs óljóst 12. janúar 2011 06:00 Júlíus Vífill Ingvarsson
Fulltrúar sjálfstæðismanna í borgarráði munu leggja fram fyrirspurn á borgarráðsfundi á morgun um lagalega endurskoðun á hlutverki mannréttindaráðs Reykjavíkur. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir mannréttindaráð ekki hafa stefnumarkandi hlutverk og því síður boðvald yfir öðrum ráðum borgarinnar. Hann vísar þar í þriðju grein samþykktar ráðsins, þar sem segir meðal annars að ráðið sé fagsviðum til samráðs og ráðgjafar um forgangsröðun verkefna á sviði mannréttindamála. Júlíus bendir á að ráðið eigi ekki að taka stefnumótandi ákvarðanir gagnvart öðrum ráðum innan borgarinnar og vísar þá sérstaklega í þá ákvörðun ráðsins um breytingar á samskiptum leik- og grunnskóla við trúfélög og lífskoðanahópa. „Menntaráð hefur ákveðið hlutverk lögum samkvæmt og í mínum huga er það vald algjörlega skýrt. Mannréttindaráð hefur hlutverk samkvæmt samþykktum borgarinnar,“ segir Júlíus. „Við munum óska eftir því að borgarlögmaður fari yfir þessi mál.“ Meirihluti mannréttindaráðs lagði til breytingar á samstarfi skóla og trúfélaga í lok síðasta árs og hefur málið nú fengið umsagnir hjá menntaráði og íþrótta- og tómstundaráði. Breytingarnar fólu meðal annars í sér að heimsóknum presta í skóla yrði hætt, líkt og heimsóknum barna í kirkju í trúarlegum tilgangi. - sv
Mest lesið Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Innlent Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Innlent Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Innlent Fleiri fréttir Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Sjá meira