Innlent

Braut tennur með glerglasi

Ríkissaksóknari hefur ákært konu á þrítugsaldri fyrir að kasta glasi í andlit annarrar konu með þeim afleiðingum að tennur brotnuðu í hinni síðarnefndu.

Atvikið átti sér stað á skemmtistaðnum á Vegamótum í Reykjavík aðfaranótt sunnudags í febrúar í fyrra.

Konan kastaði glerglasinu í andlitið á hinni með þeim afleiðingum að vinstri framtönn þverbrotnaði yfir miðja tannkrónu og sprungur komu í tvær tennur auk þess sem brotnaði úr tönn í neðri gómi. Fórnarlambið krefst ríflega 1,4 milljóna í skaðabætur.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×