Innlent

Erill í Eyjum - samt bara einn í fangageymslu

Þjóðhátíð
Þjóðhátíð Mynd úr safni
Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt og má segja að hátíð hafi byrjað í gærkveldi með svokölluðu Húkkaraballi.  Töluverð ölvun var í bænum og þurfti lögreglan að hafa afskipti að nokkrum aðilum vegna ölvunarástands. Þó gistir aðeins einn aðili fangaeymslu lögreglunnar vegna ölvunarástands. Sinna þurfti nokkrum útköllum vegna ónæðis á tjaldsvæðum í bænum og einnig hávaðaútköllum í heimahúsum.

Þá komu upp fjögur minniháttar fíkniefnamál í gær og nótt þar sem ræða kannabisefni, amfetamín og e-töflur, eða „Extacy" eins og segir í tilkynningu frá lögreglunni. Allir þessir aðilar sögðu efnin til eigin nota.

Mjög öflugt fíkniefnaeftirlit verður á hátíðinni og auk lögreglumanna munu þrír fíkniefnahundar starfa með þessum lögreglumönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×