Segir sveitarfélögin hvetja til verkfallsbrota 16. ágúst 2011 19:00 "
Það er eins og að skvetta olíu á eldinn að halda því fram að hægt sé að hafa leikskóladeildir opnar þótt deildarstjórinn sé í verkfalli" Þetta segir lögfræðingur kennarasambandsins sem telur sveitarfélögin hvetja til verkfallsbrota í kjaradeilu leikskólakennara. Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur Kennarasambands Íslands, sem Félag leikskólakennara heyrir undir, er ósammála þeirri túlkun forsvarsmanna Sambands sveitarfélaga að leikskóladeildir geti starfað áfram ef deildarstjórinn er í verkfalli og ítrekar að Félag leikskólakennara ætli ekki að víkja frá sinni túlkun. Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar sveitarfélaga, sagði í samtali við fréttastofu í dag að leikskólastjórar eigi að sjá til að allar deildir séu starfandi á meðan verkfalli stendur, og nýta til þess það starfsfólk sem ekki er í verkfalli. Hún baðst undan sjónvarpsviðtali, þar sem enn er verið að skoða alla fleti á málinu. Hún sagðist þó ekki líta á það sem verkfallsbrot ef sveitarfélögin framfylgja túlkun sinni. Það gerir Erna hinsvegar. Síðasti samningafundur í deilunni var haldinn í gær en ekki hefur verið boðað til annars fundar. Að öllu óbreyttu leggja kennarar í félagi Leikskólakennara niður vinnu eftir sex daga og munu aðgerðirnar hafa áhrif á 240 leikskóla sem sveitarfélögin reka en í þeim eru rúmlega 16.000 börn frá rúmlega 14.000 heimilum.
Mest lesið Mohamad vill flytja af landi brott Innlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Erlent Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Innlent Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Innlent Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Innlent Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Innlent Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Innlent Fleiri fréttir Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Bílakaup verðandi forseta Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Engin merki um hlaupóróa lengur Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Hringvegurinn opnaður en ökumenn beðnir um að sýna tillitssemi Handteknir við að stela dósum úr gám Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði Sjá meira