Frásagnir vitna benda til spyrnukeppni 16. ágúst 2011 20:00
Frásagnir vitna benda til að ökumaður í bílslysi við Geirsgötu á föstudag hafi verið að keppa í spyrnu við annan bíl þegar hann hafnaði á húsvegg. Talsmaður umferðarstofu kallar eftir viðhorfsbreytingu þegar kemur að áhættuhegðun í umferðinni. Lýsingar vitna eru á þann veg að bíllinn sem hafnaði á húsvegg við Geirsgötu á föstudag hafi tekið af stað með miklum hraða á sama tíma og annar bíll á ljósunum við mót Lækjargötu og Kalkofnsvegar. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, staðfestir að frásögn þeirra bendi til að bílarnir hafi verið að reyna með sér í spyrnu, en hinn bíllinn hafi hægt á sér meðan sá sem hafnaði á veggnum hafi haldið áfram á miklum hraða. Geir Jón segir grun leika á um að of hraður akstur hafi átt þátt í slysinu, en rannsókn málsins er ekki lokið. Tæknideild lögreglu vinnur nú að því að reikna út hraða bílsins, en lögregla hefur einnig lýst eftir tveimur ökumönnum sem urðu vitni að slysinu. Sautján ára piltur, sem var farþegi í bílnum, lést á sunnudag vegna meiðsla sem hann hlaut er bíllinn hafnaði á veggnum. Fjögur ár eru síðan að bíll hafnaði á húsnæði Hamborgarabúllunnar eftir að ökumaður missti stjórn á bíl sínum á svipuðum slóðum, en lögregla kannast við að ökumenn komi saman og iðki hraðakstur út við Granda, sem er nálægt slysstaðnum. Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðastofu, segir að þó það sé erfitt fyrir aðstandendur þurfi að skoða slys á borð við þetta í kjölinn til að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig. Hann treystir sér þó ekki til að tala um sérstaklega um slysið meðan rannsókn lögreglu stendur enn yfir, en kallar eftir almennri viðhorfsbreytingu til áhættuhegðunar í umferðinni.
Mest lesið Mohamad vill flytja af landi brott Innlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Erlent Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Innlent Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Innlent Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Innlent Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Innlent Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Innlent Fleiri fréttir Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Bílakaup verðandi forseta Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Engin merki um hlaupóróa lengur Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Hringvegurinn opnaður en ökumenn beðnir um að sýna tillitssemi Handteknir við að stela dósum úr gám Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði Sjá meira