Innlent

Lifðu sig of mikið inn í leikinn - lögregla kölluð til

Lögreglan.
Lögreglan.
Ungir tölvuleikjaspilarar vöktu svo mikið ónæði nágranna sinna í nótt að þeir sáu sig knúna til að kvarta til lögreglunnar. Lögreglan segir að ungu mennirnir hafi tekið ábendingum frá lögreglumönnum vel og lofað að taka tillit til annarra íbúa í húsinu.

En það bárust fleiri kvartanir í nótt vegna hávaða í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan segir að í nær öllum tilvikum hafi verið um að ræða of hátt stillta tónlist sem hafi farið fyrir brjóstið á nágrönnum.

Samkvæmt 4. grein lögreglusamþykktar er bannað að hafast nokkuð að, sem veldur ónæði eða raskar næturró manna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×