Innlent

Einn missti meðvitund í Vestmannaeyjum - þrír í hættu

Svo virðist vera sem kolsýruleki hafi komið upp í skipi í Vestmannaeyjahöfn í dag. Áhöfnin var um borð í bátnum þegar slysið varð.

Þrír menn voru að vinna í vélarrúmi bátsins við þröngar aðstæður þegar kolsýran losnaði. Einn þeirra missti meðvitund en tveir þeirra komust út af sjálfsdáðum.

Sá sem missti meðvitund var fluttur strax á sjúkrahús þar sem hann fær aðhlynningu.

Mennirnir eru á sjúkrahúsinu. Sá sem missti meðvitund verður fluttur á Landspítalann í Fossvogi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×