Innlent

Bátur fékk í skrúfuna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Óhappið varð við Gróttu.
Óhappið varð við Gróttu. MYND/Anton
Bátur fékk í skrúfuna rétt við Gróttu eftir hádegið í dag og varð stjórnvana. Einn var í bátnum. Kalla þurfti út þyrlu Landhelgisgæslunnar auk liðs frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og slökkviliðinu. Búið er að koma bátnum í tog og er verið að fara með hann til hafnar, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Tveir bátar frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg fylgja honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×