Innlent

Lögreglan leitar að þjófum á Akureyri

Óprúttnir náungar hafa verið á ferð um Akureyri undanfarnar nætur og farið in í ólæsta bíla, þaðan sem þeir hafa stolið ýmsum verðmætum.

Þeir fóru líka inn í ólæst íbúðarhús í vikunni þar sem heimilisfólkið var sofandi. Þeir eru tveir saman og munaði minnstu að þeir næðust í fyrrinótt.

Lögregla biður íbúa Akureyrar að láta sig strax vita ef þeir verða varir við grunsamlegar mannaferðir að næturlagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×