Innlent

Banaslys á Norðurlandsvegi

Banaslys varð á Norðurlandsvegi í Víðidal, á móts við bæinn Jörfa, þegar jepplingur og stór flutningabíll lentu þar í árkestri á áttunda tímanum í gærkvöldi.

Við áreksturinn valt jepplingurinn út af veginum og lést ökumaður hans. Ökumann flutningabílsins sakaði ekki.

Veginum var lokað í tvær klukkustundir á meðan rannsókn fór fram á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×