Innlent

Stórslasaði konu af gáleysi á Boston

Ríkissaksóknari hefur ákært mann fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi. Manninum er gefið að sök hafa ýtt við konu þannig að hún féll niður stiga á veitingastaðnum Boston við Laugaveg í febrúar fyrir tveimur árum.

Við fallið fékk konan skurði á höfuð, mar víðs vegar um líkamann, auk fleiri meiðsla og áverka. Konan krefst tæplega þriggja milljóna króna í skaðabætur.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×