Poppar upp hvunndaginn 20. apríl 2011 22:00 Hópurinn hefur starfað við kvikmyndir á borð við Gauragang, Djúpið og Eldfjallið. Fréttablaðið/Valli
Þegar Sveinbjörn Fjölnir Pétursson missti vinnuna sumarið 2008 fór hann strax að taka þátt í öllu sem í boði var fyrir atvinnuleitendur. Hann kom einnig fram í Kastljósi og fjallaði um málefni atvinnuleitenda, sem varð til að vekja athygli Spaugstofumanna á honum. „Þeir hringdu og báðu mig að hóa saman hópi atvinnuleitenda sem gætu verið aukaleikarar í þáttunum," segir Sveinbjörn, en hópur 25 atvinnulausra starfaði með Spaugstofunni veturinn 2009 til 2010. Þetta starf aukaleikaranna mæltist vel fyrir og fljótlega fóru fleiri að falast eftir kröftum þeirra. „Við höfum starfað við kvikmyndir á borð við Gauragang, Djúpið og Eldfjallið en tvær þeirra á eftir að frumsýna. Þá munum við líklega vera með í Svartur á leik," segir Sveinbjörn en hópurinn hefur einnig verið í Áramótaskaupinu, Hlemmavídeói, Tíma nornarinnar, Pressu 2 og Makalaus. Aukaleikarastarfið gefur ekki mikið í aðra hönd enda er það ekki markmiðið með starfinu. „Í mínum huga snýst þetta um að vera virkur, kynnast fólki og taka þátt í skemmtilegum verkefnum," segir Sveinbjörn glaðlega og bætir við að atvinnuleitendur séu tilvaldir í hlutverk aukaleikenda þar sem þeir séu lausir á þeim tímum sem tökur fari fram. „Ég lofaði fólki að við myndum ná langt og enda annaðhvort í Hollywood eða Bollywood," segir Sveinbjörn glettinn og telur drauminn ekki óraunhæfan. „Við munum til dæmis birtast í grein í New York Times Magazine á næstunni," upplýsir hann. Í dag er Sveinbjörn með um 130 manns á skrá hjá sér. „Ég þyrfti hins vegar að vera með 300 til 400 á skrá til að vel ætti að vera," segir hann og auglýsir eftir fleiri atvinnuleitendum. Þeir sem hafa áhuga geta sent tölvupóst á aukaleikarar@gmail.com. solveig@frettabladid.is
Mest lesið Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Innlent Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Innlent „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Innlent Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Innlent Walz hjólaði í Trump og Vance á fyrsta kosningafundinum í gær Erlent Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Innlent Þorvaldur Halldórsson látinn Innlent Alvarlegt vinnuslys í Grindavík Innlent Piltar undir sakhæfisaldri á bak við skemmdarverkin Innlent Lokað vegna linnulausrar rigningar Innlent Fleiri fréttir Nýtt neyslurými opnar í Borgartúni: Skoða að bjóða gestum upp á vímuefni til skaðaminnkunar Fann skotfæri úr fórum nasista á Hlíðarfjalli Alvarlegt vinnuslys í Grindavík Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Lokað vegna linnulausrar rigningar Segir líforkuver risastórt skref í átt að matvælaöryggi Þorvaldur Halldórsson látinn „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Gabbútköll skapi mjög alvarlega stöðu fyrir þyrlusveitina Sex vilja stýra Jafnréttisstofu Falsútköll, hvalreki og vígreift varaforsetaefni Steypireyður strandaði við Þorlákshöfn Piltar undir sakhæfisaldri á bak við skemmdarverkin Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Enn rólegt á Reykjanesskaga þótt gosið gæti á hverri stundu Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma „Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Sterkar vísbendingar um falsboð Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Sjá meira