Innlent

Landlæknisembættið flutt

Gamla heilsuverndarstöðin mun hýsa embætti landlæknis.
Gamla heilsuverndarstöðin mun hýsa embætti landlæknis.
Aðsetur Landlæknisembættisins flyst á Barónsstíg 47, þar sem Heilsuverndarstöðin í Reykjavík var áður til húsa, þann 2. ágúst næstkomandi.

Með flutningunum sameinast á einum stað starfsemi Landlæknisembættisins og starfsemi fyrrum Lýðheilsustöðvar, sem nú hefur verið sameinuð embættinu.

Um leið og Landlæknisembættið fær nýtt aðsetur við Barónsstíg verður einnig breyting á skipulagi starfseminnar sem hefur verið í undirbúningi frá því í upphafi árs 2010. Fagsvið embættisins verða fjögur ásamt einu stoðsviði og skrifstofu landlæknis.

- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×