Innlent

Keyra vatn í bílum í byggðina í Reykholti

Íbúar og gestir í Reykholti hafa liðið fyrir vatnsskort undanfarin sumur. Orkuveita Reykjavíkur hefur þurft að keyra vatn á svæðið í tankbílum.
Íbúar og gestir í Reykholti hafa liðið fyrir vatnsskort undanfarin sumur. Orkuveita Reykjavíkur hefur þurft að keyra vatn á svæðið í tankbílum. Mynd/Pjetur
Orkuveita Reykjavíkur hefur ekki getað séð íbúum í Reykholti fyrir nægjanlegu neysluvatni undanfarin sumur. Þurrkar hafa gert það að verkum að vatnsból dugar ekki fyrir íbúana. Hótelstjóri á Fosshóteli segir þetta hafa áhrif á reksturinn.

Vatnsból Reykhyltinga er fyrir ofan byggðakjarnann og þegar lækkar í því af völdum þurrka hefur Orkuveitan brugðið á það ráð að keyra vatn á svæðið í tankbílum. Það er dýr aðgerð. Fyrirtækið hefur fundið nýtt vatnsból við Rauðsgil en frekari mælinga er þörf áður en hægt er að taka það í notkun.

Daði Jörgensson, hótelstjóri á Fosshótel Reykholti, segir vatnsleysið skapa óþægindi fyrir gesti hans. Það geri ekki alltaf boð á undan sér, heldur minnki þrýstingur smám saman. „Þetta hefur komið niður á þeirri þjónustu sem ég hef getað boðið og ég hef þurft að afsaka mig fyrirfram gagnvart gestum og bókunaraðilum."

Hann segir fólk þó yfirleitt taka vel í þetta, en einhverjir séu þó óánægðir. Til að mynda hafi það gerst í sumar að ekki hafi verið nægt vatn til að sturta niður úr klósetti og það sé auðvitað ekki boðlegt.

Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, segir vatnsleysið hafa skapað vandamál, bæði fyrir íbúa og gesti. Fjölmargir sóttu Reykholtshátíð og þá plagaði vatnsskorturinn gesti. Hann segir blóðugt að íbúar greiði fullt vatnsgjald en fái ekki sömu þjónustu og aðrir. Til að mynda fari um helmingur allra sóknargjalda kirkjunnar í vatnsgjald, þar sem nú er greitt eftir rúmmetramagni en ekki notkun.

Kirkjan sá sjálf um sinn vatnsbúskap en afhenti hreppnum þau mannvirki að ósk hans. Hreppurinn seldi síðan áfram til Orkuveitunnar. Geir segir upphaflegar áætlanir hafa gert ráð fyrir að vatnslögn yrði lögð úr Grábrókarhrauni, sem er gríðarleg vegalengd. Fallið hafi verið frá því.

Eiríkur HjálmarssonMynd/OR
Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, segir aðstæður hafa verið mjög slæmar síðustu sumur og hafi valdið íbúum óþægindum. „Þetta er ferlegt, það er það bara," segir hann.

Hann segir holuna við Rauðsgil lofa góðu, en á hana verði að fá vetrarmælingu áður en lagt er út í kostnaðarsamar framkvæmdir. „Við þurfum vissu fyrir því að þetta sé vænlegt vatnsból áður en við leggjum út í mikinn kostnað á þessum niðurskurðartímum."

Vonast er til að hægt verði að nýta vatnsbólið næsta sumar.

kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×