Innlent

Lögregla með mikið eftirlit

Yfirlögregluþjónn í Borgarnesi segir umferðina um bæinn hafa gengið stórslysalaust fyrir sig.
Yfirlögregluþjónn í Borgarnesi segir umferðina um bæinn hafa gengið stórslysalaust fyrir sig. Mynd/HAG
Mikill straumur bíla lá um Borgarnes í gær. Umferðin óx eftir því sem leið á daginn og var lögreglan með mikið eftirlit.  Theodór Kr. Þórðarson, yfirlögregluþjónn í Borgarnesi, segir strauminn hafa legið mestmegnis til norðurs. Umferðin hafi gengið stórslysalaust. Eitthvað var um akstur undir áhrifum og einnig hafði fíkniefnahundurinn Tírí leitað í bílum og aftanívögnum.

„Við erum með Tíra að auki, umfram almenna löggæslu og hraðaeftirlit, “ segir Theodór. „Hann hefur meira en nóg að gera.“- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×