Innlent

Milljóna bótakrafa á fangelsisstjórann

Mál forstöðumannsins fyrrverandi var sent til embættis ríkissaksóknara fyrir helgina.
Mál forstöðumannsins fyrrverandi var sent til embættis ríkissaksóknara fyrir helgina.
Mál Geirmundar Vilhjálmssonar, fyrrverandi forstöðumanns fangelsisins á Kvíabryggju, var sent til ríkissaksóknara fyrir helgi. Ríkislögmaður hefur lagt fram bótakröfu í málinu á hendur honum. Hún nemur um það bil tveimur milljónum króna, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Krafan er tilkomin vegna tjóns sem talið er ljóst að ríkissjóður hafi orðið fyrir.

Þann 26. nóvember á síðasta ári var forstöðumanninum var veitt tímabundin lausn vegna gruns um tugi auðgunarbrota í starfi.

Samkvæmt lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna hefur hann helming fullra launa meðan staðan er með þeim hætti eða 270 þúsund krónur á mánuði. Hann hefur því fengið samtals um 2,5 milljónir króna í laun frá því að hann var leystur frá störfum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór með rannsókn málsins, þar sem grunur lék á að fangelsisstjórinn fyrrverandi hefði dregið sér fjármuni eða verðmæti í eigu fangelsisins.

Við rannsókn málsins leitaði lögregla á heimili Geirmundar og í sumarhúsi í eigu föður hans. Við leitina lagði hún hald á ýmsa muni sem taldir eru í eigu fangelsisins, þar á meðal ýmis verkfæri, varahluti í bifreiðar og hjólbarða.

Fangelsismálastofnun hafði áður en til rannsóknarinnar kom gert skriflega athugasemd við Geirmund vegna mikilla innkaupa fangelsisins frá fyrirtækinu N1. Samkvæmt söluyfirliti frá N1 höfðu seldar vörur frá fyrirtækinu farið úr ríflega 1,4 milljónum vegna ársins 2009 í rúmlega 3,5 milljónir fyrstu tíu mánuði árs 2010.

Ríkisendurskoðun gerði athugasemdir við innkaup til fangelsisins að upphæð 1,7 milljónir króna á tíu mánaða tímabili 2010, þar sem hið keypta fannst ekki í fangelsinu, tengdist ekki starfsemi þess eða bókhaldsgögn fundust ekki fyrir.

Gögn sem lögð hafa verið fram sýna að fimmtíu til sextíu sinnum í mánuði voru gerð smávægileg innkaup fyrir fangelsið í matvöruversluninni Samkaupum í Grundarfirði, þrátt fyrir fyrirmæli um hagkvæm innkaup frá birgjum eða lágvöruverðsverslunum.

Stór hluti innkaupanna reyndist munaðarvara sem ekki var á boðstólum í fangelsum ríkisins, svo sem kjúklingalundir, regnbogasilungur, sælgæti, gosdrykkir og fleira.

Geirmundur og eiginkona hans stunduðu innkaupin að mestu. Í sumum tilvikum kvittuðu fangar fyrir móttöku á vörum, en fangelsisstjórinn samþykkti reikningana í öllum tilvikum.

jss@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×