Leggjast gegn staðgöngumæðrun 19. janúar 2011 18:42
Starfshópur heilbrigðisráðuneytisins um staðgöngumæðrun leggjst gegn því að staðgöngumæðrun yrði heimiluð hér á landi. Í sama streng tekur siðfræðiráð Læknafélagsins. Þrátt fyrir þetta hafa nokkrir þingmenn, tveir fyrrverandi heilbrigðisráðherrar þar á meðal, lagt til að hún verði heimiluð. Forstöðumaður Siðfræðistofnunar, segir að enn sé mörgum spurningum ósvarað um staðgöngumæðrun. Guðlaugur Þór Þórðarson, setti á laggirnar hóp til að fara yfir ýmis álitamál um staðgöngumæðrun árið 2009, meðan hann var í embætti heilbrigðisráðherra. Í ráðherratíð Álfheiðar Ingadóttur, gaf hópurinn út áfangaskýrslu, í febrúar í fyrra; þar sem farið er yfir fjölmörg álitamál. Enn fremur er bent á að þessi mál þurfi að ræða ítarlega í samfélaginu áður en afstaða sé tekin til málsins. Í lokaáliti hópsins, sem skilað var til Álfheiðar í sumar, er lagst gegn því að staðgöngumæðrun verði heimiluð hér. Þar er enn fremur vitnað til siðfræðiráðs læknafélagsins sem mælir ekki með því að staðgöngumæðrun verði leidd í lög. Nokkrir þingmenn, Guðlaugur Þór og Álfheiður þar á meðal, hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar, um að hópur verði skipaður til að undirbúa frumvarp til laga, um að staðgöngumæðrun verði heimiluð. Hún verði aðeins heimiluð í velgjörðarskyni, eins og það er orðað, og aðeins að uppfylltum ströngum skilyrðum. Í greinargerð með ályktuninni er vísað til áfangaskýrslu hópsins, sem Guðlaugur Þór skipaði og málþings um þetta sem haldið var í mars í fyrra. Enn fremur segir í greinargerðinni að flutningsmenn telji ljóst að nægar upplýsingar séu tiltækar til að undirbúa frumvarpssmíð. Hvergi er hins vegar getið lokaniðurstöðu starfshópsins; sem leggst alfarið gegn því að þetta verði heimilað hér, eins og áður segir. Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, segir að enn sé mörgum spurningum ósvarað um málið. „Ég hef verið þeirrar skoðunar að fara varlega í staðgöngumæðrun," segir Salvör. Ítarleg fréttaskýring um staðgöngumæðrun verður birt á Vísi á morgun.
Mest lesið „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu Innlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Erlent Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Innlent Gena Rowlands er látin Erlent Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Innlent Fleiri fréttir Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Sjá meira