Innlent

Þetta er búinn að vera frábær ferill

Eyjólfur Kristjánsson heldur upp á fimmtugsafmælið sitt með tónleikaferð um landið og safnplötu. fréttablaðið/gva
Eyjólfur Kristjánsson heldur upp á fimmtugsafmælið sitt með tónleikaferð um landið og safnplötu. fréttablaðið/gva
Eyjólfur Kristjánsson gefur út fimmtíu laga safnplötu og fer í sína stærstu tónleikaferð til þessa í tilefni af fimmtugsafmæli sínu.

Tónlistarmaðurinn ástsæli Eyjólfur Kristjánsson heldur upp á fimmtugsafmælið sitt, 17. apríl, með því að fara í sína stærstu tónleikaferð um landið til þessa.

Hann ætlar að spila á fimmtíu tónleikum á þessu ári. Þeir fyrstu verða í Hveragerði 21. mars og þeir síðustu í október. Í tilefni af afmælinu gefur Eyjólfur, eða Eyfi, einnig út fimmtíu laga plötu. Þar verða öll hans bestu lög eins og Draumur um Nínu og Ég lifi í draumi en einnig nokkur glæný.

Hann segist sáttur þegar hann lítur yfir farinn veg á þessum tímamótum. „Þetta er búinn að vera frábær ferill, mér finnst það. Ég er búinn að vera rosalega hamingjusamur og ánægður með það sem ég er búinn að gera. Núna spýtir maður í lófana og gerir pínulítið meira,“ segir Eyfi hress. Hann hefur „aðeins“ gefið út sex sólóplötur á þrjátíu ára ferli sínum í bransanum. Síðasta platan hans með nýju efni, Stjörnur, kom út 2003. Eyfi hefur spilað þeim mun meira úti um allar trissur og hefur alltaf jafngaman af því. „Það eru einhverjir þrír til fjórir staðir á landinu sem ég hef aldrei spilað á og ég loka því núna með þessum túr,“ segir hann og nefnir Grímsey og Hofsós sem dæmi um nýja staði. „Ég hlakka rosalega mikið að byrja þennan túr.“

Eyfi hefur verið duglegur að búa sér til verkefni á ferlinum. Eitt slíkt verður í Salnum í Kópavogi 30. apríl þegar haldið verður upp á að tuttugu ár verða liðin síðan hann söng Draum um Nínu með Stefáni Hilmarssyni í úrslitum Eurovision í Róm. Á afmælisdeginum sjálfum verður hann í slagtogi með annarri dægurlagahetju, Björgvini Halldórssyni, á sextíu ára afmælistónleikum hans í Háskólabíói.

„Það er æðislegt að geta aðstoðað minn gamla góða vina Björgvin á hans tímamótum. Kannski getum við pínulítið haldið upp á mitt afmæli í leiðinni,“ segir Eyfi. Aðspurður segist hann ætla að rækta fjölskylduna meira í tilefni af þessum tímamótum sínum. „Það er ekkert voðalega fjölskylduvænt að vera alltaf í burtu. Ég ætla að reyna að taka hana með í nokkrar ferðir. Ég á tvær dætur, ellefu og fimmtán ára, og þær hafa gott af því að sjá landið eins og ég er búinn að gera.“

freyr@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×