Innlent

Alvarlegt slys á Norðurlandsvegi - búið að opna veginn

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Búið er að hleypa umferð á um Norðurlandsveg í Víðidal við Jörfa en búast má við umferðartöfum þar næsta klukkutímann vegna alvarlegs umferðalsyss sem varð þar um klukkan átta í kvöld.

Um er að ræða alvarlegt umferðarslys þar sem ökumaður fólksbíls er mikið slasaður, eftir að bifreið hans lenti í árekstri við flutningabíl.

Ökumaður flutningabílsins er óslasaður.


Tengdar fréttir

Árekstur á Norðurlandsvegi

Lögregla, sjúkrabílar og tækjabílar eru á leið á vettvang hvar umferðarslys varð fyrir um 10 mínútum á Norðurlandsvegi um Víðidal við bæinn Jörfa samkvæmt tilkynningu frá Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×